Vefsíðugerð sem skilar árangri
Við byggjum fallegar, öruggar og hraðar vefsíður byggðar á opnum hugbúnaði — sérsniðnar að þínum rekstri og markmiðum.
Hvort sem þú þarft einfalda kynningarsíðu, þjónustuvef eða flóknara kerfi, þá leiðum við þig frá hugmynd til fullbúinnar lausnar.
Af hverju að velja okkur?
Opinn hugbúnaður
Lægri kostnaður, meira frelsi og fullt eignarhald á vefnum þínum. Engin föst áskriftargjöld.
Hraði & öryggi
Við byggjum vefi sem hlaðast hratt og standast nútímakröfur um öryggi og stöðugleika.
Sérsmíðaðar lausnir
Við smíðum virkni sem ekki fæst tilbúin — sérsaumaða að þínum rekstri.
Vefumsjón & þægindi
Við sjáum um uppfærslur, breytingar og stuðning eftir afhendingu — gegn vægu gjaldi.

Hannað af fagfólki
Við hönnum vefi sem sameina góða notendaupplifun, snögga virkni og faglegt útlit. Vefurinn er auðveldur í notkun, skýr fyrir viðskiptavini og hannaður með þínum markmiðum í huga.
- Nútímaleg og notendavæn hönnun
- Leitarvélabesti (SEO) innbyggð frá fyrsta degi
- Full aðlögun fyrir síma og spjaldtölvur
- Öruggur grunnur og stöðugt rekstrarumhverfi
Svona vinnum við
Við vinnum í skýrum skrefum svo þú vitir alltaf hvar málið er statt.
- Þarfagreining – Við ræðum hugmyndir, markmið og þarfir rekstursins.
- Hönnun – Við mótum útlit, uppsetningu og notendaupplifun sem hentar.
- Uppsetning & smíði – Tæknileg vinna, viðbætur, sérsmíði og stillingar.
- Efni & fínstilling – Textar, myndir, SEO-stillingar og prófanir.
- Afhending & vefumsjón – Vefurinn fer live og við sjáum áfram um uppfærslur og breytingar ef óskað er.
Möguleikar & viðbætur
Bókunarkerfi
Gestabókanir, viðburðir eða þjónustuviðtöl beint í gegnum vefinn.
Netverslun
Auðvelt að bæta við WooCommerce þegar þú vilt byrja að selja.
API Tengingar
API tengingar við bókhald, birgðakerfi eða önnur lausnarkerfi.
Aðgangsstýringar
Innskráning, lokaðir hlutir vefs og sérsniðin réttindi.
Sérsmíðun
Við getum smíðað það sem vantar — sértæka virkni fyrir þinn rekstur.
Greiðslulausnir
Tengingar við kortakerfi, netbanka og aðrar öruggar greiðslugáttir.
Hefjum næsta skref saman
Hvort sem þú ert að stofna nýjan rekstur, endurnýja eldri síðu eða þarft faglega ráðgjöf, þá finnum við lausn sem hentar þér — bæði í verði og virkni.

